Á Borgarási við Dimmuborgir í Mývatnssveit hefur verið reist þjónustuhús sem hýsir Mývatnsmarkað, Kaffi Borgir og snyrtingar fyrir ferðamenn sem leið eiga um Mývatnssveit.
Það er Trésmiðjan Rein ehf. sem hefur gert fimm ára þjónustusamning við Landgræðslu Ríkisins um uppsetningu á þjónustuhúsinu en rekstraraðili hússins er fyrirtækið Draumaborgir ehf.
Frá Þjónustuhúsinu er einstakt útsýni yfir Hallarflötina og Dimmuborgirnar allar sem eru með fegurri náttúruperlum landsins.
Þjónustuhúsið, Mývatnsmarkaður og Kaffi Borgir var opið daglega frá 3.april og verður opið 11:30-16:00 í apríl og maí og frá 1. júní verðu opið 9:00-22:00




